|
Wildboys.is Óskar Ingólfsson - Skúli Júlíusson |
|
10.08.2010 23:52Toppfarar á austurlandi - Dyrfjöll og Snæfell.Síðastliðinn föstudag fórum við Óskar fyrir 29 manna hóp Toppfara á hæsta tind Dyrfjalla, Súlu. Ferðin gekk í alla staði mjög vel enda var að megninu til um að ræða vant göngufólk. Þoka lék um fjöllin lengi framan af og létti ekki almennilega til fyrr en hópurinn var kominn á toppinn. Þá var sem dregið væri frá tjöldum og stórbrotið landslagið kom í ljós og almenn toppagleði réð ríkjum. Ferðin var söguleg af þeim sökum að bæði var hópurinn sá stærsti sem gengið hafði á Súlu og við félagarnir vorum með gestabók í kassa sem Johan Rönning gaf til styrktar verkefninu. Eftir fjölmargar myndatökur af hópnum og frágangi kassans á toppnum og um 30 undirskriftum í bókina var haldið niður að dyrunum sem er ómissandi fyrir alla sem heimsækja þennan stað. Þoka lék um dyrnar og Stöpulinn sunnan megin en inn á milli kom dýrðin í ljós og sýndi okkur hversu lítil við vorum á þessum ótrúlega stað. Eins og alltaf kemur að því að það ÞARF að fara niður aftur þar sem sundferð og akstur í Snæfell var einnig á dagskrá hjá okkur. Allir áttu erfitt með að flýta sér frá þessum stað og voru liðnir 10 tímar þegar við komum í bílana frá því við lögðum af stað um morguninn. Eftir sundferð og heitan pott var farið í fataskipti og síðan brunað í Snæfell þar sem hópurinn bauð okkur í hangikjötsveislu í skálanum. Áætlað var að ganga á Snæfell á laugardeginum en ekki virtist veðurspáin henta þeim plönum. Farin var undanfaraferð til að kanna hvort veður væri betra ofar í fjallinu en svo reyndist ekki vera og ákveðið að reyna aftur snemma á sunnudagsmorguninn. Eftir grillveislu með öllu tilheyrandi og kvöldvöku var ræs kl 4 í þessu líka fína veðri og gekk 25 manna hópur af stað kl 5:30 frá bílastæðinu innan við skálann. Að sjálfsögðu tók á móti okkur vindur á Uppgönguhrygg en aldrei hef ég komið þar í hægum vindi eftir 5 skipti. Vindinn lægði þó aðeins á kafla þegar ofar dró en bætti svo aftur í efst við toppinn. Ekki var stoppað lengi á toppnum þar sem kalt var og vindkælingin mældist -10C°. Stilltum okkur þó upp fyrir nokkrar hópmyndatökur sem eru nauðsynlegar við svona tækifæri. Heildartími á uppleiðinni var 3,5 tímar sem verður að teljast mjög vel af sér vikið. Komum svo niður á bílaplan kl 11:30 eða eftir 6 tíma alls. Síðan var gengið frá í skálanum og hópurinn keyrði í bæinn ánægð með göngur á tvo þekktustu tinda austurlands. Mjög skemmtileg helgi með samheldnum og mjög skemmtilegum hóp. Takk fyrir okkur Toppfarar. Skrifað af Skúli Júl. Fjallgönguklúbburinn Fjallhress Komdu með á fjöll allt árið um kring Myndir úr ferðum Um klúbbinn Útbúnaðarlisti Nýtt Æfingagöngur Nýtt Flettingar í dag: 92 Gestir í dag: 23 Flettingar í gær: 145 Gestir í gær: 50 Samtals flettingar: 154249 Samtals gestir: 35673 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:10:31 |
Fjallatindar 2012 29
Næsta fimmtudagsganga 7. júní Framundan Fjallhress Ferðaáætlun Smellið á ferð fyrir nánari upplýsingar
Ferðir með
Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs Sumarið 2012. Smellið á ferð fyrir nánari upplýsingar
Verslun Miðvangi 13 Sími: 535-6693 & 893-1062 Vinnufatnaður - Útivistarfatnaður - Gjafavara Allt til útivistar
Egilsstöðum Tenglar
|