Wildboys.is

Óskar Ingólfsson - Skúli Júlíusson


Útbúnaðarlisti

Útbúnaðarlisti fyrir fjallgöngur og aðrar ferðir Fjallhress.

 

Á eftirfarandi lista eru þau atriði sem mestu máli skipta varðandi klæðnað og búnað í fjallgöngum.  Við listann bætast svo fleiri atriði sem gott er að hafa meðferðis.

Rauðlituðu atriðin skulu ávallt vera meðferðis í ferðum Fjallhress.

 Besta leiðin til að klæða sig til gönguferða er að klæðast 2-3 lögum, innsta lag, millilag og ystalag. Á hlýrri dögum er svo hægt að sleppa a.m.k einu lagi.  Allt er þetta persónubundið og nauðsynlegt að prófa sig áfram með.

 

Fatnaður:

- Innsta lag úr ull eða gerviefnum (ekki bómull)

- Millilag úr flís eða sambærilegu efni (ekki bómull)

- Göngu eða flísbuxur í millilagi (ekki gallabuxur)

- Ysta lag - stakkur / buxur úr vatns/vindheldu öndunarefni (Alltaf)

- Góð húfa (auka húfa eða lambúshetta í tindferðum)

- Hlýjir vettlingar (auka belgvettlingar í tindferðum)

- Sokkar með minnst 50% ull í vetrarferðum (alltaf aukapar með)

- Auka peysa eða jakki (t.d. primaloft)

- Góðir gönguskór með grófum sóla og góðum ökklastuðningi.

- Góð lambúshetta getur gert gæfu muninn við erfiðar aðstæður.

 

Búnaður:

- Bakpoki 20-40 ltr.

- Farsími (alltaf með)

- Höfuðljós (sept-júní)

- Keðjubroddar (yfir vetrartímann)

- GPS tæki (hafa með ef það er til)

- Persónlegt sjúkra-kit (alltaf með)

- Göngustafir (gott að hafa með)

- Legghlífar (gott að hafa með)

- Skíðagleraugu (vetrarferðir)

- Sólgleraugu (nauðsynleg í björtum vetrarferðum)

- Sólarvörn (nauðsynleg í björtum vetrarferðum)

 

Nesti:

-T.d. kraftmikið brauð, flatbrauð o.fl

-Nóg að drekka (1-2 ltr.)

-Heitt á brúsa (nauðsynlegt í vetrarferðum)

-Súkkulaði, hnetur, orkustykki o.fl.

 

Hafa ber í huga að aðstæður geta verið fljótar að breytast í óbyggðum, þó ekki sé farið langt frá byggð.  Bæði vegna veðurs og óhappa og því mikilvægt að búa sig einnig fyrir hið óvænta!







Fjallgönguklúbburinn

 

Fjallhress



Komdu með á fjöll allt

árið um kring


Myndir úr ferðum
Um klúbbinn
Útbúnaðarlisti
Nýtt   Æfingagöngur   Nýtt


Á SPOTsíðu Fjallhress

er hægt að fylgjast með hópnum á Google maps.

Hólmatindur - 17. maí

eftir

1 dag

Þverártindsegg 25-27 maí

eftir

9 daga




Reykjavík - Faxafen 8  sími 534-2727
Egilsstaðir - Kaupvangur 6  sími 471-2525



Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 145
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 154249
Samtals gestir: 35673
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:10:31

Fjallatindar 2012

       
29

Næsta fimmtudagsganga


7. júní


Næsta tindferð Fjallhress



FRESTAÐ TIL

17. maí

Framundan

      Fjallhress  

      Ferðaáætlun

              Smellið á ferð fyrir nánari upplýsingar      


          Ferðir með
          Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
          Sumarið 2012.

          Smellið á ferð fyrir nánari upplýsingar


                                                       
            

          Verslun Miðvangi 13

          Egilsstöðum

          Sími: 535-6693
          & 893-1062

          Vinnufatnaður - Útivistarfatnaður - Gjafavara
          Allt til útivistar




          Egilsstöðum

          Tenglar